Bonjour!

22.11.2007 12:46:00 / hunangskoddi

daginn

Bara i tilefni þess að Fríða fékkst til þess að blogga eftir langa bið, þá telst ég skildug til þess að gera það sama!

Það er óttarlega litið að gerast fyrir utan skólann, kennararnir gera allt sem þeir geta til þess að kaffæra okkur í vinnu, svo félagslífið er buið að vera lítið sem ekkert. En annars er ég bara hress og kát, ein og hálf vika í jólafrí, rúmur mánuður í jólin, og það fer að styttast í að kjéllingin verður stúdent!

Er einhver annar en ég kominn með á tilfinninguna að maður sé orðinn gamall? skólinn klárast í vor, þá á að íta manni ótilbuin út á vinnumarkaðinn eða í háskólann.. eg hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera. Svo finnst mér vera svo margir í kringum mig sem eru annaðhvort að kaupa sér íbúð eða að barn sé á leiðinni... á meðan kýs ég hótel mömmu og helst atvinnuleysi með möns uppí rúmi.

.... annars hef ég því miður ekki mikið meira að segja frá. Ég skal lofa að blogga strax og eitthvað spennandi gerist! Annars vona eg bara að þið hafið það öll sem best, njótið lífsins og allt gangi ykkur í haginn=)

Linda kveður að sinni, Hittumst heil.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 01:13:02 / hunangskoddi

Litli Snúðurinn minn orðinn 4 ára!!!

Tíminn er alltof fljótur að líða! Í dag, þann 11 oktober, átti Óskar Bjarmi, uppáhalds frændi minn afmæli! Hann er orðinn 4 ára!

Óskar Bjarmi er sætasti strákur i heiminum, elska hann svo mikið. Ég ætla að sýna ykkur nokkrar myndir af gæjanum!

2dagagamall.jpg picture by hunangskoddi3
- 2 daga gamall! -

9mnaa.jpg picture by hunangskoddi3
- 9 mánaða! -

1rs2.jpg picture by hunangskoddi3
- 1 árs! haha alltof sætur með 6 tennur! -

stasturiheimi.jpg picture by hunangskoddi3
- haha nývaknaður að skoða sig -

jlastrkur.jpg picture by hunangskoddi3
- jólastrákur! -

bjt.jpg picture by hunangskoddi3
- íþróttagarpur! -

oskar.jpg picture by hunangskoddi3
- ást hans og yndi! vera berrassaður útí að borða NAMMI -

haha.jpg picture by hunangskoddi3
- haha hann hélt að krabbinn myndi bíta sig -

egogoskarbjarmi.jpg picture by hunangskoddi3
- við óskar í dýralandi í sumar! -

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 19:15:58 / hunangskoddi

Orðin Ellismellur!

Jæja kæru vinir, þá er kellingin orðin 19 ára gömul. Átti afmæli i gær og það er ekki annað hægt að segja en að dagurinn var æðislegur, mjög sátt!

Fór i skólann kl.8, og min biðu ekkert nema knús og afmælisóskir. Eftir skóla fór ég síðan á Hressó með Guðrúnu Drífu, Evu og Auði. Þær buðu mér að borða, og voru síðan eins æðislegar og það gerist og pönntuðu köku fyrir mig með afmæliskerti! Guðrún Drífa var síðan svo lúmsk að "skreppa aðeins" og kom til baka með afmælisgjöf, "maður verður nú að fá afmælisgjöf á afmælisdaginn" haha aðeins of sætt!

Sidan þegar ég kom heim, var afmæli herna heima fyrir fjölskylduna. Mamma ofur öflug að baka, ég fékk nóg af gjöfum, get ekki verið annað en ánægð.

Síðan um kvöldið komu Haffi og Steina til að gefa mer afmælisknús. Spjölluðum heillengi.

Til að toppa alltsaman þá á hann Valur minn tvítugsafmæli í dag! Orðinn svo gamall! haha til lukku ástin min:*

Annars er allt gott að frétta, nóg að gera i skólanum, ég er farin að vinna á Ítalíu á laugarveginum:)

ps. Það verður þema í afmælinu minu á laugardaginn, PIMPS AND HOES (ekki spurja, eva ákvað þetta hahaha). Þvi miður gat ég ekki boðið öllum sem eg vildi, var komin með lista uppí 40-50 manns!:S svo, ég þurfti að kutta virkilega ut.

vil þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar! virkilega mikils metnar!:*


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 00:41:57 / hunangskoddi

Tyrkland

Blessuð og sæl, eg lennti i morgun á keflavíkurflugvelli eftir erfitt 6 tíma flug. Eða það er að segja ég var að koma ur 2 vikna sólarlandaferð, útskriftarferð til Marmaris á Tyrklandi. Ferðin var æðisleg, rosalega margt gerðist, ætla að hafa þetta auðvelt og skrifa bara nokkra punkta, er of þreytt i almennilegt blogg.

  • Við fórum öll saman í 6 tíma bátsferð, einkabát sem tók 400 manns. Hann fór um eyjarnar i kring, í honum var rennibraut og fengum við að hoppa útí sjóinn á nokkrum stöðum. Syntum m.a. að Paradísareyjunni svokölluðu og þar sáum við apa!
  • Við stelpurnar skruppum í dagsferð til Rhodos á Grikklandi, þvílíkt fallegur staður. Skoðuðum gamla bæinn, allar flottu byggingarnar, fórum svo auðvitað að versla í nýja bænum.



  • Það var pöntuð fyrir okkur einkaströnd, ég var að búast við ágætlega flottum stað en vá þetta var fáránlega flott! aldrei séð annað eins, geðveikur matur og frítt áfengi. Við sátum svo bara á bryggjunni með táslurnar í vatninu að drekka, gerist ekki betra held eg.
  • Næturlífið þarna er ... fáránlegt! klúbbaraðirnar sem eru þarna, aldrei vitað annað eins. Við komumst lika að því að þessi staður var tilvaliiiinnn útskriftarferðarstaður, asnalega gaman að djamma þarna, endalaust af fjöri. Svo ef það rennur af þer niðri bæ og þu átt ekki mikinn pening þá eru borð útum allt á "barstreet" (þar sem stóru klúbbarnir eru) þar sem þu getur keypt skot á litinn pening! það er hugsað fyrir öllu.
  • Í Tyrklandi, þá þarftu að prútta! ég var nu bara orðin ansi öflug seinustu vikuna en fyrst vissi eg ekkert hvað ég var að gera! náði nu að versla aðeins á fjölskyldumeðlimi og kærastann, keypti nu bara 2 peysur á mig, svosem alveg nóg.
  • Hvernig mynduð þið taka í það ef þið væruð að labba niður laugarveginn og við hverja einustu búð væru menn sem væru að reyna að draaaaga þig inní búðina, og kasta kannski nokkrum hræðinlega lélegum pickuplínum inní? þetta þurftum við að upplifa alla daga allan daginn, ekki bara fatabúðum heldur líka matsölustaði, reyna að bjóða þer fría drykki ef að þu kaupir mat þarna og svo framvegis. Þetta var lika orðið svoltið mikið þreytt, maður var byrjaður að labba framhjá og þykjast ekki taka eftir þeim. Sem er nu svoltið dónalegt ég veit það alveg en ef þu gerir það ekki ertu hálftima að labba nokkra metra.



  • Maturinn þarna var ekki beint sá besti, enda treystum við ekki grænmetinu né mjólkurvörunum, svo matarræðið var voðalega takmarkað. Oftast var það Pizza eða hamborgari, sukkfæði. Enda eru allir ónýtir í maganum, fóru nokkrir uppá spítala útaf næringaskorti.
  • Loftkælingin var svaðaleg í herberginu hjá okkur, annað hvort áttum við að slökkva á henni eða hafa hana i botni (semsagt mjööög kallt) og við sofnuðum alltaf með hana í botni, vorum byrjaðar að hlýja okkur í lakið á næturnar, enda fundum við fyrir því, allar komnar með kvef og ég ligg herna nuna í slappari endanum, varla buin að gera annað en að snýta mer og hósta síðan eg kom heim.
  • Við kynntumst æðislegu fólki þarna úti, sérstaklega má nefna þjónana, þeir svoleiðis stjönuðu við okkur. Dönsuðu fyrir okkur seinasta daginn, m.a. sexbomb og fóru allir úr að ofan uppá sviði með hatta og klúta! þetta var frábært, leiðinlegt að kveðja þá.



  • Miiiiiikið var um það að fólk var að slá sér saman, var nu samt mest um það að dömurnar voru að hitta hina og þessa Tyrkja, enda voru þeir nu ekki ómyndalegir. Sorglegt en satt þá var svoltið um framhjáhöld, enda lika smá af orgíum og kynsvöllum! haha það lifðu allir á slúðri, svo allir vissu allt um alla.
  • elsku litla sæta fríða min, fékk illt í lungun á seinustu dögunum átti aðeins erfitt með að anda, en því stelpan er svo þrjósk þá sagðist hun bara ætla til læknis þegar hun kæmi heim. Í flugvélinni náði hun ekki andanum og þurfti hun að fá súrefniskút nánast alla leiðina heim (6 tíma flug!), ég endaði með því að fara með henni beint úr flugvélinni í sjúkrabíl og á sjúkrahús. fórum ekki einusinni i gegnum tollinn og stelpurnar þurftu að ná i töskurnar okkar. Þrátt fyrir mikinn sársauka þá fór húmorinn ekki úr fríðu minni, við hlógum að því að við hefðum alveg getað smyglað ólöglegum varningi til landsins! synd og skömm.
  • Það er alltof mikið að segja frá þessari ferð, eg kem þvi alls ekki fyrir í einu bloggi! ef þið viljið vita meira bara spurjiði! ps. það eru svona 500 myndir eða meira ur þessari ferð, eg veit ekkert hvort ég set þær hingað inn eða ekki, kemur bara allt í ljós.


vil þakka öllum kvenskælingum fyrir FRÁBÆRA ferð! þetta var æðislegt!


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 23:32:41 / hunangskoddi

Hvildu i friði...

Dagurinn í dag er buinn að vera mesti sorgardagur sem eg hef upplifað, sá erfiðasti og sá lengsti. Í morgun lést Markús Sævar Gíslason mágur minn eftir langa og harða baráttu við krabbamein. Það eru ekki til orð yfir það hversu æðislegur þessi maður var, frábær í alla staði og sama hversu veikur hann var það var alltaf stutt í humorinn hjá honum. Krúsi, eins og hann hefur alltaf verið kallaður, var eins og stóri bróðir minn, get ekki lýst þvi hversu vænt mér þótti og þykir enn um hann. Hann mun alltaf eiga stað i hjarta minu.

Mikið er buið að reyna á fjölskylduna í dag, þá sérstaklega hana Svövu mina. Hún er buin að vera svo sterk, er með sama viðhorf og Markús var alltaf með "njóta þess að vera á lífi, ekki taka neinu sem sjálfsögum hlut, vera þakklát fyrir hvern dag". Hjálpar alltaf að hugsa jákvætt og vona að hann sé farinn á betri stað.

Vil þakka öllum þeim sem hafa sýnt mér og fjölskyldu minni stuðning á þessum erfiða tíma.

svavaogkrusi.jpg
- Hvildu i friði Krúsi minn -

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 00:21:46 / hunangskoddi

góða kvöldið

Góða Kvöldið

Jæja, um helgina fór ég til eyja. þýðir ekki annað þar sem það var sjómannadagshelgin, verð nu að standa með minum manni. Fríða, Silla, Mist og fleiri komu lika til eyja, svo það var nóg af fjöri. Fríða kellingin fór á bíl og fékk ég far, þar sem ég varð dj (alltaf gott að eiga ipod), skemmtum okkur konunglega að hlusta á Leoncie, Hasselhoff, jólalög, lög úr fóstbræðrum og fleira! haha.

Á föstudeginum fórum við meðal annars á drífanda sem var fint, held samt að ég hafi aldrei lennt i þvi að það hafi verið svona fáir þarna inni þegar ég hef farið, ætli það sé ekki reykingarbanninu að kenna, illa farið með reykingafólkið - látið standa úti í skítakulda og rigningu.

Á laugardeginum var svo nóg að gerast niðrá bryggju, við stelpurnar héldum okkur bara inní bíl og horfðum á allt saman með pizzu i annarri og kók i hinni. Var sidan smá party heima hjá val um kvöldið, héldum síðan uppí höll um 8 leytið þar sem við fórum í geeeðveiiikan mat! sidan var ball um kvöldið, rosalega gaman. (gott að eiga kall á sjó, allt frítt haha).

Sidan var bara tekið þvi rólega á sunnudeginum og haldið heim með herjólfi klukkan 4.

lovl.jpg
- ég, Mist, Silla og Fríða -

lovl2.jpg
- ég og fríða min í herjólfi -

Annars er vikan bara buin að vera góð, vinnan alltaf jafn fin, veðrið alltaf jafn íslenskt, buin að fara á kaffihus 2var, við reykingafólkið erum ennþá að reynað venjast þvi að fara út, en eg held að þetta komi alltsaman, maður hættir þessu eflaust bara á endanum.

Bara allt gott að frétta af mér, hvernig hafið þið það annars öllsaman? lífið að leika við ykkur? ætla rétt að vona það! en eg ætla nu bara að hafa þetta gott í bili, og farað horfa á simpsons. Góða nótt! adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 14:15:07 / hunangskoddi

punktablogg

ég nenni ekki að skrifa mikið svo ég set bara herna inn litið punktablogg

  • ég er byrjuð að vinna á leikskólanum, er alveg að finna mig þarna, hreint og beint æðislegt!
  • á föstudaginn fór eg með liðinu uppí hraun í hafnarfirði (ákvörðun ragga) þar sem við sátum i einhverri holu með kassagítar að syngja og drekka bjór
  • okkur varð síðan svo kallt að við gátum ekki verið þarna mikið lengur svo við skelltum okkur nokkur niðrí bæ, jáhá og þar var drukkið aðeins of mikið, en voðalega gaman
  • laugardagurinn var hræðilegur, þynnka ut í eitt, við helga erum sammála um að jaraðaberja-mojhito-inn sem við vorum að drekka hafi haft þessi áhrif (vorum báðar ónytar)
  • svava, krúsi og óskar bjarmi komu í mat um kvöldið, ostafyllt kjöt og fleira gómsætt
  • fór síðan með rebekku og öddu heim til lindu hrannar en eg nennti ekkert að drekka, þær fóru nirði bæ en eg fór bara heim og var feit (uppí rúmi með nammi að horfa á vidjó)
  • á sunnudaginn (í gær) hitti eg evu mina niðri bæ, keyptum okkur iskaffi til að taka með og settumst fyrir framan alþingishusið (man ekki hvað þetta blessaða tún heitir) og spjölluðum
  • við kiktum sidan aðeins á Barinn, en tókum svo strætó niðri mjódd, þar sem eg var að fara i bio með familiunni á Pirates of the Carribian
  • myndin var flott og fyndin.. en mér fannst mörg atriði i myndinni of langdregin, hefði mátt sleppa hálftíma af myndinni sem fór bara i vitleysu
  • fór sidan eftir bioið að kikja á nyju íbuðina hjá Þórunni og júseppé, þvíltíkt flott hjá þeim
  • við eva tókum sidan strætó niðri bæ og fórum á Barinn, það var bara eins og laugardagur, stappað og við fengum okkur bara öllara og skemmtum okkur frábærlega
  • eg var svo sniðug að ég fékk mer alltaf vatnsglas á milli bjóra i gær, svo að ég varð ekkert drukkin, vaknaði eldhress í morgun
  • en jæja eg ætla að fara að fá mer eitthvað gott að borða, vona að þið hafið það gott! ADIOS

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 17:51:10 / hunangskoddi

My spoon is tooo biiiiig!

ég ætlaði mér að kæta hana Evu mina aðeins, þar sem við erum báðar hálfsúrar útí þessu próf! Svo ég photoshopaði nokkrar myndir fyrir hana, vildi bara deila einni af henni með ykkur, bara til að setja eitthvað herna inn...

MYNDAFLIPP.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 11:45:00 / hunangskoddi

nyjustu fréttir

Seinustu Helgi fór ég í Afmælið hennar Ágústu með Val, Steina, Fanney, Hafliða og Jenna. Við fórum uppí bústað, farið var í pottinn, grillað, drukkið.. já segjum bara að það hafi verið ótrúlega gaman, ég stal myndunum frá Fanney sem hún tók um helgina og setti hér til hliðar í "afmæli ágústu - Nýtt" endilega skoðiði það.

Ég var sidan að vinna á Sunnudeginum, mín allra seinasta vakt á Pizzahut, mikil gleði!

Á mánudeginum var síðan árshátið hjá pizzahut. Byrjuðum kl. 5 í party heima hjá Danna og Róberti, fórum sidan á broadway i mat og enduðum þar í sukkinu á Sálarballi. Ótrúlega skemmtilegt, sumir hressari en aðrir, enda hef ég talað við nokkra sem mundu ekki eftir helmingnum af kvöldinu! haha.. en klukkan svona 3 fórum ég, helga, ársæll og jói á sólon og þar dönsuðum við til klukkan 5.

Síðan er ég buin að sitja heima í namminu og læra fyrir próf, fyrsta prófið er á morgun (föstudag) í Íslensku 503, vonandi að maður spjari sig! ég fer i 5 próf og klára 16 maí. Þannig að þið megið alveg búsast við því að heyra ekkert frá mér þangað til þá, nema ég þurfi að bitna biturleika minum/eða skella hamingju minni á ykkur, hver veit =)

En bestu fréttirnar af öllu er að hann Krúsi minn er næstum fluttur heim! Ótrúlegt! Kraftaverk er eina orðið yfir þetta! ég heimsótti hann á spítalann og þar var hann rúmliggjandi sidan innan við viku seinna þá er hann kominn heim, hress og kátur! Hann fær bara hjúkrunarkonu heim til sín einu sinni á dag til að gefa honum lyfin sín. Vona svo innilega að hann haldi áfram á þessari braut! Ótrúlega Stolt af þer krúsi minn, veit alveg að þu lest litla sorglega bloggið mitt!

Annars ætla ég að farað halda áfram að læra með henni helgu minni sem er buin að gista hjá mér seinustu tvær nætur, stelpugreyið er að fara i próf nuna á eftir klukkan 3! sendi henni good-luck strauma! dzzzz

okey nóg af sýru í bili! adios! gangi öllum vel i prófunum eða bara öllu því sem þið eruð að gera af ykkur! bæææ


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 23:08:24 / hunangskoddi

HVAÐ ER AÐ GERAST!!!!

HAHAHAHAHAHAH!!!!!!

ég, helga, guðrun og freyja sitjum á barnum og það er einhver utlendingur að SYNGJA FYRIR OKKUR!!!! án gríns.. eitthvað voðalegt ástarlag.. OG HANN ER ENNÞÁ AÐ SYNGJA!! við sitjum fyrir framan hann í kasti

 ... þurfti að deila þessu með ykkur! PRICELESS!!! hahaha

 þurftum vel á þessu að halda! leiðindar nám!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 18:48:09 / hunangskoddi

Föstudagur

Föstudagurinn seinasti var án efa frábær!

Peysufatadagurinn i kvennó var á föstudaginn, dagurinn byrjaði á þvi að við hittumst öll uppí ýmirshúsi í morgunkaffi, dönsuðum síðan um allan bæ, m.a. hjá menntamálaráðuneytinu, í kringlunni, ingólfstorgi, smáralind og auðivitað í kvennó. Hún Eva min var dansfélaginn minn og skemmtum við okkur konunglega!

Picture077.jpg
- Eva og ég, dansandi og syngjandi fyrir framan kvennó! -

Picture099.jpg
- kvennaskólinn minn -

Eftir allt fjörið var haldið heim, allir úrvinda eftir daginn og eflaust flestir sem lögðu sig í einn tíma eða tvo. Síðan uppúr 7 þá mættu allir uppí Gróttu, eða það er að segja Félagsmiðstöðina á seltjarnarnesi, þar sem var Ítalskt hlaðborð og síðan smá dansiball!

Picture013-1.jpg
- Guðrun Drífa, Hugrun, Eva og Ég -

Picture008-1.jpg
- vilborg sæta og ég -

Picture023-2.jpg
- hahaha sætasta myndi heimi! ég og lydia! -

Picture011.jpg
- ha ha GOLDEN MOMENT! ég, róbert og fríða með lúðasvip -

Þar sem Haffi minn hélt uppá tvítugs afmælið sitt sama kvöld þá fór ég af dansiballinu rétt eftir miðnætti, afmælið var haldið á klúbbnum, frítt áfengi og voða fjör.

Um hálf 3 fóru ég, helga, ársæll og jói síðan á sólon og vorum þar til 5, enduðum síðan kvöldið að sjálfsögðu með þvi að fá okkur nonnabita! haha

Þetta kvöld var frábært! Vil sérstaklega þakka Evu minni fyrir frábæran dans, annars bara öllum fyrir æðislegt kvöld! ég tók einhverjar myndir, set þær inná við tækifæri!

vona að þið hafið það öll sem best.
kv. Linda


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 14:47:28 / hunangskoddi

kosningarvika

Jæja mikið a gerast i kvennó þessa dagana... KOSNINGARVIKA!

m.a. eru Silla, Anna, Fríða og Eva að bjóða sig fram = SAFE!!!


 - Elskurnar minar að bjóða sig fram í FréttaPétur = skólablaðið! .. flottar myndir ekki satt? enda tók ÉG þær=) -

einnig Róbert, Krummi, Guðrun Drífa og fleiri skemmtilegir að bjóða sig fram!

en eg er nu mest buin að verað hjálpa SAFE stelpunum minum, merkja og gefa allskonar dót, held að matsalan og sjoppan hafi ekki grætt mikið i þessari viku þar sem frambjóðendurnir voru að gefa allskooonar mat og dót, m.a. subway, quiznoz, pizzur, bakarísmat, vöfflur, smokka, nammi, snakk .. just name it:D

sidan var fyrri hlutinn af ræðunum í dag og seinni hlutinn verður á morgun, einnig verður kosningin á morgun og annaðkvöld kosningarvaka en þar sem eg þarf að vinna (eins og vanalega:/) þá missi ég af þvi en eg sendi píunum minum góða strauma:D

en jæja .. góðan daginn! ekki mikið að frétta af mer annars, allir dagar vikunnar eru svonna: Skóli og beint í vinnu! hafði reyndar smá tima nuna eftir skóla til þess að plebbast þvi Guðrun Drífa ástin min var svo elskuleg að bjóðast til að skutla mér heim, þannig að ekkert strætóvesen=)

svo bara 2 dagar i páskafrí! Ekkert smá æðislegt! erum svo bara i skolanum til hálf 12 á föstudag, svo það verður gert eitthvað sniðugt... einnig ætlum við að hafa stelpukvöld á föstudagskvöldinu.. svonna til að fagna fríinu=)

en jæja.. ég ætti að hættað bulla, takk fyrir að nennað lesa þetta! vona að þið hafið það öll sem best! endilega skrifiði comment og látið heyra aðeins í ykkur


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 18:35:29 / hunangskoddi

"lærdómur"

Jæja hér sitjum við helga á Cultura niðri bæ, að gera það sem við gerum best... sötra kaffi og te og nördast i tölvunni... mín afsökun er sú að ég er að bíða eftir Guðrunu Drífu sem ætlar að koma með Frönskubókina (ég á hana ekki... dadaraaa) þannig að ég get ekkert gert fyrren hún kemur; ) en já við erum semsagt að farað lææææra... frönskupróf á morgun.. er ekki buin að lesa staf, en við verðum vonandi duglegar að þýða i kvöld!

annars er nu ekki mikið að frétta af mer, var reyndar i eyjum um helgina, þar sem við fórum meðal annars í tvítugsafmæli Smára, sem var voðalega gaman.

Grímuballið er svo á morgun... einhverjar hugmyndir um búning? ... eða einhver sem getur reddað mér búning? haha.. annars stendur til að vera voooða plein hjúkka (með engum aukahlutum) ... sem er nu mikið betra en ekkert: )

 en já.. áður en ég fer að bulla, þá kveð ég að sinni! ætla að halda áfram að "læra"; )

vona að þið hafið það öll sem best! adios!


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 20:07:27 / hunangskoddi

nýjar myndir!

Jæja eg er buin að setja inn myndirnar sem ég tók á föstudaginn, enjoy!

(er undir "afmæli ragga og helgu")


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 18:07:25 / hunangskoddi

LEG!

Mín fór í leikhús í gærkveldi með Guðrunu Drífu og félögum hennar. Við fórum í Þjóðleikhúsið á leikritið "LEG" sem er eftir Hugleik Dagsson!

Þetta leikrit var algjör Snilld! Við gjörsamlega misstum okkur i hlátrinum, og ég sé alls ekki eftir þvi að hafa farið! Mæli með því!

ef að þið eruð ekki að gera ykkur grein fyrir því hver Hugleikur Dagsson er .. ættuð samt að kannast við þetta...

 

 

 

- Hugleikur Dagsson = Snillingur -

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16